Stjórn Hjartaverndar Norðurlands afhenti í gær heilsugæslunni að gjöf 13 blóðþrýstingsmæla af bestu gerð og munu þeir leysa af hólmi gamla kvikasilfursmæla sem margir hafa verið í notkun í meira en 25 ár. Andvirði gjafarinnar er rúmlega 1,8 m.kr.

Hjartavernd Norðurlands hefur ávallt stutt vel við bakið á heilsugæslunni með ýmsum gjöfum, síðast árið 2010 með hjartastuðtæki og sólarhringsblóðþrysingsmæli. Þessi gjöf núna kemur að góðum notum enda eru blóðþrýstingsmælar einna mest notaða mælitækið í heilsugæslunni.

Við afhendingu blóðþrystingsmælanna sagði Snæbjörn Þórðarson formaður Hjartaverndar Norðulands að félagið hefði ekki haft fjármagn til þessara kaupa ef ekki hefði komið til velvilji hjónanna Margrétar Halldórsdóttur og Tryggva Jónssonar en Margrét gaf andvirði íbúðar sinnar við Víðilund til minningar um mann sinn. Fyrr á árinu styrkti félagið Sjúkrahúsið á Akureyri um kaup á tveimur fullkomnum hjartaómtækjum og einnig styrkir Hjartavernd Norðurlands Kolbrúnu Sigurlásdóttir hjúkrunarfræðing í meistaranámi við Háskólann á Akureyri en hún tók við styrknum við afhendingu blóðþrystingsmælanna. Samtals eru því styrkir Hjartaverndar Norðurlands til þessara þörfu verkefna um 9 milljónir króna.

Heilsugæslustöðin á Akureyri þakkar Hjartavernd Norðulands fyrir raunsnarlega gjöf og ómetanlegan velvilja sem mun endurspeglast í bættri þjónustu við íbúa svæðisins.

Heimild: Akureyri.is