Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í fyrsta skiptið dagana 18.–22. júní 2025.

Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni og stefnt er að því að viðburðir fari fram sem víðast í öllum landshlutanum.

 

Einstaklingar, félög og fyrirtæki eru hvött til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og allra helst standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina.

 

Hvernig getur þú tekið þátt í hátíðinni?

 

  • Haldið viðburð – t.d. tónlistaratriði, fræðsluviðburð eða skapandi uppákomu
  • Boðið upp á sérstaka afslætti eða tilboð í tengslum við hátíðina
  • Skreytt og lýst upp rýmið ykkar í litum hátíðarinnar
  • Stutt við hátíðina með styrkjum eða samstarfi
  • Flaggað fána hinseginleikans

 

Þau sem hafa áhuga á að leggja fram hugmynd eða halda viðburð mega endilega hafa samband við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra hátíðarinnar á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.

 

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

 

Heimasíða hátíðarinnar er www.hinseginhatid.is en þar eru allar helstu upplýsingar að finna og munu viðburðir hátíðarinnar birtast þar þegar nær dregur hátíðinni. Hátíðin er einnig á samfélagsmiðlum og þar verður hægt fylgjast með undirbúningi hátíðarinnar og finna yfirlit yfir viðburði.

Facebook síða Hinsegin hátíðar – facebook.com/hinseginhatid

Instagram síða Hinsegin hátíðar – https://www.instagram.com/hinseginhatid/