Gleðiganga á vegum Hinsegin Norðurland fer fram á hátíðinni Einni með öllu, laugardaginn 3. ágúst. Göngufólk ætlar að hittast á planinu fyrir framan Keiluhöllina á Akureyri kl. 14:30 og hefst gangan um kl. 15 og gengið verður sem leið liggur eftir Hafnarstrætinu og endað við hátíðarsviðið við Skátagilið.
Hinsegin Norðurland var einnig með á hátíðinni í fyrra og gengu þá frá Akureyrarkirkju inn á Ráðhústorgið við góðar undirtektir.