Hermannsgangan fer fram laugardaginn 3. febrúar næstkomandi kl. 12:00 við Gönguhúsið í Hlíðarfjalli. Hægt verður að skrá sig á keppnisdag í gönguhúsi. Verðlaunaafhending og veitingar verða strax að göngu lokinni í Hlíðarfjalli.
Gengnar verða eftirfarandi vegalengdir með hefðbundinni aðferð:
- Hermannsgangan 24 km., þátttökugjald 3.000 kr.
- Hermannsgangan 8 km., þátttökugjald 2.000 kr.
- Hermannsgangan 4,0 km., þátttökugjald 1.000 kr.