Bylgjulestin verður á Siglufirði þessa helgina og setja eflaust lit sinn á bæinn. Hermann Gunnarsson og Svansí útvarpa þætti sínum Ævintýraeyjan kl. 13-16 frá Kaffi Rauðku í dag laugardag.
Þá verður söltuð síld við Róaldsbrakka kl. 15. Harmonikkuleikur og bryggjuball að sýningu lokinni.
