Fyrirtækið HeliAir hefur óskað eftir leyfi fyrir tímabundnum eða varanlegum þyrlupalli í innri höfn í Ólafsfirði. Hafnarstjórn Fjallabyggðar tók vel í málið á fundi í vikunni en skipulags- og framkvæmdasvið Fjallabyggðar þarf að fylgja málinu eftir í samráði við umsækjenda m.t.t. skipulagsmála og öryggis á svæðinu.
HeliAir er í ferðaþjónustunni og hefur haft lendingarstað á Kleifum í Ólafsfirði og víðar.