Helgi Jóhannsson fjármálaráðgjafi skipar 1. sæti H-listans í Fjallabyggð. Helgi starfar sem fjármálaráðgjafi hjá Arion banka og kynnir sig hér í aðsendum pistli.

Helgi Jóhannsson:

Ég er giftur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sviðstjóra velferðarsviðs hjá Fjallabyggð, og eigum við þrjú börn, Tímon Davíð, Klöru Mist og Jódísi Jönu. Ég er 61 árs og hef búið alla mína ævi í firðinum fagra fyrir utan níu mánuði í Kópavogi. Ég starfaði hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar frá árinu 1983 og síðar Arion banka í Fjallabyggð.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á bæjarmálum og þá helst umhverfis- og skipulagsmálum svo og framkvæmdum í sveitarfélaginu. Á þessu kjörtímabili, sem er að ljúka, hef ég setið í bæjarstjórn og bæjarráði. Ég hef reynt að leggja mig allan fram í þeim störfum meðal annars með því að hafa áhrif á mál sem eru í gangi og einnig að koma með mál og erindi að borðinu. Ég hef setið sem bæjarfulltrúi frá byrjun árs 2021.
Það helsta sem ég hef verið að brasa, svona utanvið hina hefðbundnu vinnu, er að koma að uppbyggingu á tveimur veitingarstöðum og gistihúsi, Höllinni, Kaffi Klöru og Gistihúsi Jóa. Þessir staðir hafa fengið nýja eigendur og eru í góðum rekstri. Mér finnst mikilvægt að maður reyni að láta gott af sér leiða í því samfélagi sem maður býr, mér finnst ég hafa reynt að gera það. Eitt verkefni sem ég ákvað að fara í var gera upp gamlan trébát, Freymund ÓF, sem afi minn og frændi áttu. Hann verður vonandi fyrsti vísir af sögu smábátaútgerðar hér í Ólafsfirði og stendur nú til sýnis í miðbænum á Ólafsfirði og er töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Ég ætla mér lengra með þetta verkefni þegar tími vinnst til. Ég er í stjórn Fjallasala ses. en það félag stendur að Pálshúsi í Ólafsfirði en þar hafa verið nokkrar áhugaverðar sýningar sem tengjast Ólafsfirði.
Þau sem mig þekkja vita að jólin eru minn tími og hef ég komið að jólakvöldinu mikla í Ólafsfirði s.l. ár ásamt fleira góðu fólki. Ég legg mig líka fram um að skreyta húsið okkar og garðinn í kringum jólin og það gleður mig þegar ég sé allra yngstu kynslóðina njóta þess sem fyrir augun ber.
Ég sat í stjórn MTR frá stofnun hans 2010 og fram til ársins 2017 og gegndi formennsku í þrjú ár.
Helstu áhugamálin þess utan eru að ganga á fjöll sumar sem vetur, gönguskíði, fjallaskíði og almenn útivera næra bæði líkama og sál. Fjallabyggð og Tröllaskaginn eru líka einstakir staðir til að vera á allt árið um kring. Einnig er knattspyrna mér ofarlega í huga sem gamall knattspyrnumaður, í ensku knattspyrnunni er Liverpool liðið.
Að bjóða sig fram í sveitarstjórn krefst töluverðrar vinnu því það þarft að undirbúa sig fyrir alla fundi og kynna sér þau mál sem liggja fyrir. Ég er tilbúinn að gefa af mér þann tíma því áhuginn á því að gera eitthvað gott fyrir samfélagið okkar er virkilega til staðar. Það líður ekki sá dagur að maður fái ekki einhverjar hugmyndir sem snúa að því að gera betur í Fjallabyggð, ekki síst í umhverfismálum. Þess vegna býð ég mig fram fyrir þessar sveitarstjórnakosningar.
Bæjarmálafélag Fjallabyggðar bíður nú fram H-listann í þriðja sinn. Við höfum ekki náð því að vera í meirihluta en ég vona að það sé komið að því núna, til þess þarf H-listinn að fá góða kosningu 16. maí næstkomandi.