Fjölnota íþróttahúsið Boginn við Skarðshlíð á Akureyri er opið öllum þeim sem vilja ganga sér til heilsubótar innandyra frá kl. 8.30-12.00 alla virka daga. Þetta er einkum heppilegt yfir vetrartímann þegar veður er slæmt og ófærð á göngustígum og hálka. Hringurinn er 370 metrar og eru yngri sem eldri hvattir til að nýta sér aðstöðuna án endurgjalds.
Einnig má geta þess að á Þórsvellinum eru tvær innstu hlaupabrautirnar upphitaðar og þeir sem vilja frekar ganga eða trimma úti undir berum himni geta notfært sér það. Loks má nefna að það er alltaf heitt á könnunni í íþróttahúsinu ef fólk vill fá sér kaffisopa eftir að hafa hreyft sig.