Rannsókn á málinu sem kom upp í Ólafsfirði í Fjallabyggð í byrjun vikunnar, þar sem maður lést í heimahúsi, miðar vel. Vettvangsrannsókn er lokið og úrvinnsla á ýmsum gögnum úr henni í fullum gangi. Þá er búið að taka margar skýrslur af bæði vitnum og grunuðum. Heildarmyndin er smám saman að skýrast og teljum við okkur hafa ágæta mynd af atburðarrásinni í aðdraganda þess að maðurinn lést.
Lögreglan ákváð í dag að láta einn sakborninganna lausan úr gæsluvarðhaldi, þar sem það þótti ekki lengur líklegt til að spilla rannsóknarhagsmunum að hann gengi laus. Eftir situr einn í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til n.k. mánudags. Ákvörðun um hvort farið verður fram á framlengingu á gæsluvarðhaldinu verður tekin um helgina.
Rannsókn af þessu tagi er umfangsmikil, flókin og tímafrek. Hún heldur nú áfram með yfirheyrslum og greiningu gagna. Enn eiga ýmsar réttarlæknisfræðilegar niðurstöður eftir að berast og niðurstöður úr ýmsum tæknirannsóknum. Það geta liðið vikur eða mánuðir uns öll kurl verða komin til grafar í þessu máli og sennilega ekki margt sem Lögreglan getur eða mega upplýsa um til viðbótar meðan málið er á rannsóknarstigi.