Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur ráðið þá Halldór Ingvar Guðmundsson og Þórð Birgisson sem einnig eru leikmenn liðsins til að stýra meistaraflokki KF út tímabilið. Þeir eru eftirmenn Jóns Stefáns Jónssonar sem var látinn taka poka sinn eftir 4-0 tap gegn Sindra þann 10. ágúst síðastliðinn. KF á 5 leiki eftir og getur því mest náð í 21 stig í deildinni, og liðið á enn tölfræðilega möguleika ef önnur úrslit verða hagstæð að halda sér í 2. deildinni.
Næsti leikur liðsins er gegn Knattspyrnufélagi Vesturbæjar á Ólafsfjarðarvelli, laugardaginn 27. ágúst kl. 14:00. KV er í þriðja neðsta sæti með 17 stig og því algjör lykilleikur fyrir KF að vinna.


