Skemmtiferðaskipið Ocean Endeavour
Fjallabyggð mun skoða alla möguleika á hagræðingu í rekstri Fjallabyggðarhafna á næstu rekstrarárum í ljósi þeirrar þróunar sem fyrirsjánaleg er, meðal annars vegna færri komum skemmtiferðaskipa. Hafnarstjóra hefur verið gert að leggja fram tillögur um útfærslur á starfsmannahaldi hafnarinnar, en einn hafnarvörður hefur sagt starfi sínu lausu.
Rekstur hafnarinnar það sem af er ári er að mestu í samræmi við áætlanir Fjallabyggðar.
Fyrir liggur skýrsla um efnahagsleg áhrif á gjaldtöku skemmtiferðaskipa og yfirlit yfir bókanir á komu skemmtiferðaskipa í Fjallabyggð á næsta ári. Mikill samdráttur er í bókun og aðeins eru 9 komur bókaðar á næsta ári en komur fóru í 34 á árinu 2025.