Nýja þjónusta frá Parka er komin í gang á Tjaldsvæðinu á Siglufirði. Nú er hægt að bóka fyrirfram í gegnum Parka. Tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar hefur nú verið opið í nokkra daga og eru fyrstu gestir sumarsins mættir. Tjaldsvæðið á Stóra-Bola og á Rammalóðinni eru enn lokuð en verða opnuð við fyrsta tækifæri eða aðstæður eru í lagi. Rekstraraðili á tjaldsvæðinu á Siglufirði í sumar er Evangar sf, tengiliður er Jón Kort Ólafsson.  Börn yngri en 16 ára greiða ekkert á tjaldsvæðinu en fullorðnir greiða 1700 kr. og eldri borgarar 1400 kr. Þá er greitt fyrir rafmagn, þvottavél og þurrkara og gistináttagjalds.

Tjaldsvæðið á Siglufirði býður gestum upp á fjölbreytta og aðgengilega gistiaðstöðu á þremur svæðum í bænum – við höfnina í miðbænum, á Rammalóðinni og í náttúrunni við Stóra bola. Öll svæðin eru með salerni og rafmagn, og á tjaldsvæðinu í miðbænum er aðgangur að sturtu og þvottavél og þurrkara gegn gjaldi.

Miðbæjarsvæðið er staðsett í hjarta bæjarins, við höfnina í einstaklega fallegu umhverfi þar sem að veitingastaðir, verslanir og söfn eru í göngufæri.
Rammalóðin er staðsett á móti lögreglustöðinni og í göngufæri frá miðbænum.
Svæðið við Stóra-Bola er í skjóli við snjóflóðavarnargarð og í nálægð við tjörn, náttúruna og fallegar gönguleiðir.