Fimmtudaginn 31. janúar kl. 17 verður haldin hæfileikakeppni Grunnskóla Fjallabyggðar í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði.
Keppendur koma af öllum aldursstigum og taka þátt ýmist einir eða í hóp.
Rúta fer frá Torginu kl. 16:30 og til baka að keppni lokinni.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.