Guðrún Sif Guðbrandsdóttir skipar 3. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð.
Guðrún Sif er Siglfirðingur og viðskiptafræðingur að mennt, eiginkona og fjögurra barna móðir. Hún starfar sem fjármálastjóri hjá Primex.
Guðrún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnsýslu eftir að hafa starfað sem deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála hjá Fjallabyggð á árunum 2017–2022. Hún þekkir vel innviði sveitarfélagsins og leggur ríka áherslu á fagleg vinnubrögð, gagnsæi og ábyrga stjórnsýslu.
Guðrún býður sig fram af krafti til að leggja sitt af mörkum til sterkrar og traustrar uppbyggingar í Fjallabyggð, samfélags þar sem börn vilja snúa aftur heim að námi loknu og þar sem vel er hlúð að eldri íbúum þess.
Í frítímanum nýtur hún útivistar, hefur sérstakt dálæti á blaki og skíðum og metur samveru með fjölskyldu og vinum mikils.
Baráttusæti þar sem reynsla, ábyrgð og skýr sýn skipta sköpum.