Keppnin í Skólahreysti var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri 29. apríl og voru nemendur frá Grunnskóla Fjallabyggðar að keppa Það voru þau Mundína Ósk Þorgeirsdóttir (hreystigreip og armbeygjur), Ásdís Ýr Kristinsdóttir (hraðabraut), Sverrir Freyr Lúðvíksson (hraðabraut) og Óðinn Arnar Jónsson (upphýfingar og dýfur). Varamenn voru Gréta Mjöll Magnúsdóttir og Mikael Ingi Jónsson.
Nemendur unglingadeildar Grunnskóla Fjallabyggðar fóru með rútu á keppnina ásamt kennurum sínum. Keppnisliðið stóð sig frábærlega, var t.d. með besta tímann í hraðabrautinni og endaði í 3. sæti í sínum riðli. Efsta liðið í hverjum riðli fer áfram í lokakeppnina.
