Skólahreysti var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri 30. apríl síðastliðinn og var keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Keppendur Grunnskóla Fjallabyggðar voru þau Mundína Ósk Þorgeirsdóttir(hreystigreip og armbeygjur), Silja Rún Þorvaldsdóttir (hraðabraut), Tómas Ingi Ragnarsson (hraðabraut) og Óðinn Arnar Jónsson (upphýfingar og dýfur). Varamenn voru Sverrir Freyr Lúðvíksson og Ásdís Ýr Kristinsdóttir.

Nemendur unglingadeildar Grunnskóla Fjallabyggðar fóru með rútu á keppnina ásamt kennurum sínum og studdu liðið áfram. Keppnisliðið stóð sig frábærlega og endaði í 3. sæti.

Það var lið Grunnskóla Húnaþings vestra sem sigraði þennan riðil í Skólahreysti 2025 og tryggði sér þátttökurétt í úrslitum sem verða 24.maí. Í öðru sæti varð Varmahlíðarskóli og Grunnskóli Fjallabyggðar í þriðja sæti eins og áður sagði.