Laus staða húsvarðar í Grunnskólanum á Siglufirði.
Um starfið:
Hann starfar við og hefur umsjón með húseignum skólans, tækjum og innanstokksmunum. Sér um opnun/lokun húsnæðis, annast lítilsháttar viðhald og tekur á móti aðföngum fyrir stofnunina. Tekur þátt í ræstingum og gæslu á göngum og skólalóð. Hefur umsjón með og hefur mannaforráð vegna ræstinga. Ekki er gerð krafa um iðnmenntun.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 464-9150 / 845-0467 eða jonina@fjallaskolar.is