Grunnskóla Fjallabyggðar barst peningagjöf í júlí s.l. frá nemendum fæddum 1962 og voru í skólanum á Siglufirði  á árunum 1969-1978.  Gjöfin var ætluð til kaupa á kennslugögnum til að efla skákkennslu í skólanum. Gjöfinni var varið til kaupa á skáksettum og skákklukkum.

Á næstunni hefst skákkennsla í bekkjunum við Norðurgötu Siglufirði og á nýju ári við Tjarnarstíg Ólafsfirði, nú þegar er skák kennd sem valgrein í unglingadeildinni við Hlíðarveg á Siglufirði.  Fulltrúar árgangsins voru þær Agnes Þór Björnsdóttir og Dagmar Jensdóttir sem afhentu Jónínu Magnúsdóttur skólastjóra gjafabréf.

Heimild: Fjallaskolar.is