Síldarkaffi Síldarminjasafnsins verður með viðburð næstkomandi laugardag, þann 12. október. Boðið verður uppá tónlistarveislu og kokteila.
Tríóið ARISMARI samanstendur af tónlistarmönnunum og systkinunum Renu, George og Alexander Rasoulis. Þau munu flytja líflega tónlist frá heimaeyjunni sinni Krít, þar sem tónlistarhefðin litar daglegt líf með dansi og söngvum. Tríóið fer með áheyrendur í tónlistarferðalag frá einni strönd Krítar til annarar.
Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis.