Grímseyjarferjan Sæfari mun fara í slipp þriðjudaginn 14. nóvember og falla því niður næstu brottfarir þar á eftir, þ.e. miðvikudaginn 15. nóvember og föstudaginn 17. nóvember.
Fram að slipptöku siglir Sæfari til Grímseyjar samkvæmt áætlun þ.e. föstudaginn 10. nóvember og mánudaginn 13. nóvember.

Meðan Sæfari er í slipp mun fiskiskipið Þorleifur sinna afurða- og vöruflutningum til og frá eynni. Áætlunarflug milli Akureyrar og Grímseyjar verður í boði eins og verið hefur á vegum Norlandair þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga og verður flugferðum fjölgað ef þörf reynist, sjá nánar norlandair.is