Götuganga Akureyrar verður haldin í annað sinn, laugardaginn 12. október, kl. 13:00. Í þetta sinn er opið fyrir alla aldurshópa.
Frítt er í gönguna og gaman fyrir göngugarpa að hittast og ganga saman tæplega 5 km leið meðfram Pollinum.
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 23 föstudaginn 11. október til að eiga möguleika á útdráttarvinningi. Sækja þarf keppnisnúmer í Hof á götugöngudag (12. okt) kl. 10-12. Göngugarpar verða svo beðnir um að skila númeri að göngu lokinni svo endurnýta megi þau.
Athugið að allir sem vilja fá tíma sinn skráðan verða að vera með keppnisnúmer framan á sér þegar þeir koma í mark.
Nánari upplýsingar og skráning: https://bit.ly/götuganga