Í dag miðvikudaginn 5. október er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Um leið lýkur formlega verkefninu Göngum í skólann hér á landi. Er þetta í fimmta skipti sem Ísland tekur þátt í verkefninu. Hófst það í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi.

Í ár taka 59 skólar um allt land þátt í verkefninu. Þeir sem að því standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Landlæknisembættið, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Megin markmið Göngum í skólann eru að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og umhverfismálum og það hversu „gönguvænt“ umhverfið er.

Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið og hvernig það hefur farið fram í þátttökuskólunum á heimasíðu þess www.gongumiskolann.is.