Nú hefur göngugatan á Akureyri aftur verið opnuð á ný fyrir umferð vélknúinna ökutækja.
Í sumar var lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja í göngugötunni á Akureyri alla daga, allan sólarhringinn, frá 3. júní og út ágúst. Þó var aðgengi tryggt fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila en fyrir aðföng rekstraraðila á milli 07:00 og 10:00 alla daga.
Verkefnið átti að auka öryggi gangandi vegfarenda, eiga þátt í því að efla bæjarbrag og virka hvetjandi fyrir íbúa og gesti til að ganga og njóta útiveru yfir sumartímann.