Fyrsta golfmóti sumarsins er lokið í Ólafsfirði, en Cutter and Buck mótaröðin fer fram á miðvikudögum í sumar á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði á vegum Golfklúbbs Fjallabyggðar. Keppt er í þremur flokkum og eru mótin alls 10 í sumar.

  • Opinn flokkur:  Höggleikur án forgjafar
  •  Opinn flokkur forgjöf. 26,4 og lægri (fgj.flokkur 1-4):  Punktakeppni með forgjöf
  •  Áskorendaflokkur (forgj. 26,5 og hærri):  Punktakeppni með forgjöf  

Í opnum flokki sigraði Ármann Viðar Sigurðsson með 19 punkta. Sara Sigurbjörnsdóttir var í 2. sæti með 18 punkta og Þorleifur Gestsson með 18 punkta.

Í áskorendaflokki þá var Geir Hörður Ágústsson með 19 punkta í 1. sæti og Sigmundur Agnarsson í 2. sæti með 17. punkta.

Í höggleik án forgjafar þá var Ármann Viðar Sigurðsson á 33 höggum.