Vegna þess hve golfvöllurinn á Siglufirði kemur vel undan vetri og veðurspáin er góð að hefur verið ákveðið að hafa mótið sem verður á laugardaginn 2. júní upphitunarmót með fullu setti, þetta verður því ekki einnar kylfu keppni eins og ráð var fyrir gert. Spilað verður með punkta fyrirkomulagi. Mótið hefst kl. 13:00. Mótsgjald 1.000 kr. Endilega skráið ykkur í mótið á www.golf.is.