Golfklúbbur Fjallabyggðar horfir til róbótavæðingar á golfvellinum í Ólafsfirði til að bæta og auðvelda umhirðu vallarins. Klúbburinn sótti því um styrk til Fjallabyggðar vegna málsins.
Fjallabyggð hafði þegar gert ráð fyrir að kaupa slátturóbóta á næsta ári og vill sveitarfélagið því skoða samnýtingu á græjunni með Golfklúbbi Fjallabyggðar.
