Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna 2023 fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi dagana 18.-20. ágúst. Golfklúbbur Fjallabyggðar var þátttakenda í mótinu.

Alls tóku níu klúbbar þátt. Efsta liðið fór upp í 1. deild. Golfklúbbur Fjallabyggðar endaði í 3. sæti. Flottur árangur hjá liðinu.

Leikinn var höggleikur fyrstu tvo dagana, alls 36 holur. Fjögur efstu liðin mættust í tveimur umferðum þar sem að leikin var holukeppni, einn fjórmenningur og tveir tvímenningar.

 

Lokastaðan:

1. Golfklúbbur Selfoss, GOS
2. Golfklúbbur Akureyrar, GA
3. Golfklúbbur Fjallabyggðar, GFB
4. Golfklúbburinn Leynir, GL
5. Golfklúbbur Borgarness, GB
6. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar, GVS
7. Golfklúbbur Grindavíkur, GG
8. Golfklúbbur Álftaness, GÁ
9. Golfklúbburinn Esja, GE