Nú á dögunum skrifuðu Golfklúbbur Akureyrar og Dominos undir áframhaldandi samstarfssamning. Samningurinn er til tveggja ára.

Dominos hefur lengi verið styrktaraðili hjá GA og stutt sérstaklega við barna- og unglingastarfið en rjúkandi heitar Dominos pizzur eru í boði í lok hvers Golfskóla hjá GA.

Nú bætist það við að GA félögum býðst 30% afsláttur af öllum sóttum pizzum á matseðli þegar pantað er á netinu eða með appi. Kóðinn virkar ekki með öðrum tilboðum og er lágmarkspöntun 1.000kr. Kóðinn er GA30.