Árlegt villibráðarkvöld Fjörfisks, starfsmannafélags Samherja á Dalvík var haldið um síðastliðna helgi. Þar gæddu starfsfólk og gestir sér á íslenskri villibráð í skreyttum matsal Samherja. Þetta er í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar matarveislu. Formaður starfsmannafélagsins er Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir og veislustjóri var Ívar Helgason. Villibráðarkvöldið er vanalega upphafið af vetrardagskrá starfsmannafélagsins. Fjörfiskur er með 14 fasta viðburði á hverju ári og er því félagslífið blómlegt fyrir starfsmenn Samherja á Dalvík. Næstu viðburðir félagsins verða litlu-jólin, tónleikar og leikhúsferð.
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja var gestur á villibráðarkvöldinu.
Matseðillinn:
Forréttir
Villisveppa súpa borin fram með súrdeigsbrauði
Grafinn lax með dilli og kryddjurtum
Lakkrísgrafinn lax
Reyktur lax
Sósur: graflaxsósa, piparrótarsósa
Grafin gæs
Lakkrís grafin gæs
Grafin svartfugl
Reykt gæs
Sólberjasósa
Hvítlauks og bláberjasulta
Aðalréttir
Heiðagæsa bringur sous vide og grillað
Hreindýr sous vide og grillað
Gæsalæra confit
Hrossafille í soja og wasabi
Villibráðarsósa
Sætkartfölumús
Waldorf salat
Salat
Rótargrænmeti
Eftirréttur
Marengsbomba
Þetta kom fram í frétt á vef samherja.is, ásamt ljósmyndum.