Nýir eigendur eru búnir að taka í gegn veitingasalinn á Kaffi Klöru í Ólafsfirði, en eigendaskipti urðu á staðnum nú í haust. Staðurinn er kominn í nútímalegra útlit og er búið að endurskipuleggja borð og stóla, breyta loftlýsingu og borðum. Mun léttara yfir salnum og skemmtilegri lýsing. Þá voru flísar og veggir endurmálaðir í nýju litum, gardínur teknar niður og er nú mun bjartara í rýminu.
Íbúum var boðið í opnunarkaffi á dögunum og mætti meðal annars bæjarstjóri Fjallabyggðar í heitan kakóbolla og vöfflur. Fjölmenni mætti á staðinn til að þiggja veitingar og eiga góða stund.

