Ferðafélag Akureyrar er með skipulagða göngu á Arnfinnsfjall við Ólafsfjörð, föstudaginn 22. júlí. Gangan er hluti af gönguviku FFA en í gær var gengið á Hólshyrni á Siglufirði.  Nánari upplýsingar um gönguviku er á vef FFA.

Brottför kl. 8:00, föstudaginn 22. júlí á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23, Akureyri.                                           Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er til Ólafsfjarðar að bænum Ytri-Á. Þaðan er gengið á fjallið Arnfinnsfjall eða Finninn, eins og fjallið er jafnan kallað af heimamönnum. 6 km. Hækkun 690 m.