Um jól og áramót fellur yfirleitt til mikið af alls kyns úrgangi og rusli. Lifandi jólatrjám sem lokið hafa hlutverki sínu er mikilvægt að koma í endurvinnslu sem og flugeldarusli sem er engan veginn við hæfi að skilja eftir á víðavangi.
Í byrjun janúar verður gámum fyrir jólatré komið fyrir við verslanir Bónuss í Naustahverfi og Langholti á Akureyri.
Gámar fyrir flugeldarusl verða við sömu Bónus verslanir en einnig við grenndarstöðina norðan við Ráðhús Akureyrarbæjar.
Íbúar á Akureyri eru eindregið hvattir til að nota þessa gáma.
Flugeldarusl og jólatré verða ekki tekin við lóðamörk.