Handverks- og gjafavöruverslunin Gallerí Ugla hefur hætt starfsemi eftir 10 ára rekstur við Aðalgötu 9 í Ólafsfirði. Eigendur staðarins hafa tilkynnt að þeir ætli að snúa sér að öðrum verkefnum.
Í Uglu var hægt að finna fjölbreytt úrval handunna muna og gjafavöru frá ýmsum aðilum úr Fjallabyggð. Einnig fatnað, málverk, baðvörður og margt fleira.