Það styttist óðum í að fyrstu lundarnir snúa aftur til Grímseyjar eftir vetrardvöl á hafi úti. Þessir heillandi sjófuglar koma yfirleitt í kringum 10. apríl og dvelja í Grímsey yfir varptímann og fram á sumarið áður en þeir snúa aftur út á sjó eða um 10. ágúst.
Grímsey er einn af bestu stöðunum á Norðurlandi til að sjá og ljósmynda lunda – ásamt þúsundum annarra sjófugla sem halda til í Grímsey yfir vorið og sumarið.