Fyrsti opnunardagur ársins á Skíðasvæðinu á Siglufirði verður á  laugardaginn  17. janúar frá kl: 11:00-16:00. T-lyftu og töfrateppi verður opið og Súlu lyftan verður gangsett eins fljótt og aðstæður leyfa. Svæðið er enn í vinnslu og er víða þunnur snjór.

Einn dagur kostar 6000 kr fyrir fullorðinn, tveir tímar 4000 kr og 3 tímar 5000 kr. Einn dagur fyrir ungmenni 11-17  ára kostar 2000 kr.

Nánari upplýsingar má finna á verðskrá skíðasvæðisins.