Fyrsti kennsludagur annarinnar í Menntaskólanum á Tröllaskaga var í dag og mættu nemendur skólans í fyrsta sinn eftir sumarleyfi. Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari bauð nemendur velkomin og miðlaði nauðsynlegum upplýsingum til nýnema. Einnig kynntu kennarar sig og sögðu frá hvaða greinar þau kenna og öðrum verkefnum sem þau sinna í skólanum.
Engin kennsla er á morgun, föstudag en á mánudaginn byrjar skólastarfið af fullum krafti.
Stundatafla er nú með öðru sniði en verið hefur í MTR. Núna hefjast kennslustundir nú kl. 9:00 en kennslu lýkur 15:15 eins og verið hefur.
Frá þessu var greint á vef mtr.is í dag.
