Þann 8. mars sl. frumsýndu Leikfélögin í Fjallabyggð nýtt íslenskt leikrit, Stöngin inn!, í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Höfundur og leikstjóri er Guðmundur Ólafsson. Sýndar hafa verið fimm sýningar við góðar viðtökur. Næsta sýning verður í dag Skírdag. Er þetta fyrsta sameiginlega leiksýning leikfélaganna tveggja í Fjallabyggð og fyrsta skrefið í að sameina leikfélögin.

Verkið fjallar um það ástand sem skapast í litlu bæjarfélagi þegar konurnar fara í kynlífsverkfall til að mótmæla mikilli fjarveru manna sinna, sem eru flest kvöld að heiman að horfa á knattspyrnu í sjónvarpinu. Það sem er í fyrstu hugsað sem létt spaug og áminning til kaStöngin innrlanna en vindur upp á sig og skapar vandræðaástand í bæjarfélaginu.

Sextán leikarar taka þátt í sýningunni ásamt fjögurra manna hljómsveit, en leikritið er prýðir frábærum lögum eftir ABBA sem Guðmundur Ólafsson hefur samið íslenska texta við.