Markmaðurinn Javon Jerrod Sample hefur gert félagskipti frá Hömrunum og í Dalvík/Reyni. Javon var áður hjá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar í fjögur tímabil en lék fyrst fyrir Einherja á Vopnafirði árið 2019 þegar hann kom til landsins. Undir lok tímabils 2020 gerði Javon stuttan samning við Dalvík/Reyni og lék einn leik.

Javon er fæddur árið 1995 og hefur spilað 118 leiki á Íslandi í deildar- og bikarkeppnum og hefur góða reynslu.

Javon er því aftur kominn til Dalvíkur/Reynis eftir nokkra ára fjarveru. Javon hefur búið í Fjallabyggð undanfarin ár og verið þar í vinnu.