Það voru starfsmenn Rarik í Skagafirði  sem fundu þessar minjar þegar að þeir voru að grafa smá skurð austan við gamla bæjarhólinn til að leggja niður rafmagnsstreng. Í skurðinum er hleðslugrjót sem gæti hafa verið í undirstöðum elstu kirkjunnar í Keflavík.

Eina heimild um mögulega kirkju og kirkjugarð í Keflavík er ákvæði í Sjávarborgarmáldaga frá 1399 um að Sjávar­borgar­prest­ur eigi að þjóna bænhúsi í Keflavík. Sumarið 2008 var leitað merkja um bænhúsið í Keflavík í fornleifakönnun og fundust leifar 10.-11. aldar byggðar en eng­­inn kirkju­garður. Hér er því afar mikilvægur fundur fyrir Skagfirsku kirkjurannsóknina sem svo er kölluð og hefur staðið yfir frá 2007. En í þeirri rannsókn er lögð áhersla á að staðsetja og staðfesta elstu kirkjugarða.

keflavik_1805 keflavik_1833

Texti og heimild: Byggðasafn Skagfirðinga, www.glaumbaer.is