Vakin er athygli á því að varp fugla er að hefjast í Fjallabyggð og er þeim tilmælum beint til fólks að taka tillit til þess og vera ekki á ferð um varpsvæðin á Siglufirði og í Ólafsfirði að óþörfu og alls ekki með hunda.
Á Siglufirði er svæðið í kringum Leirurnar, Langeyrartjörn og á tanganum við Innri höfn.
Í Ólafsfirði er það svæðið í kringum Ólafsfjarðarvatn.