Framkvæmdaraðilar Frönsku kvikmyndahátíðarinnar hafa nú ákveðið að sýna nokkrar myndir á Norðurlandi og er þetta í fjórða sinn sem hátíðin er haldin á Akureyri. Að þessu sinni verður hátíðin haldin í fyrsta sinn í Fjallabyggð.  Sýningarnar verða alls þrjár og allar laugardaginn 15. mars. Tvær myndir verða  sýndar í Bláa Húsinu á Rauðkutorgi á Siglufirði og ein mynd sýnd í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Ókeypis aðgangur er á sýningarnar. Nánari upplýsingar hér.

Árlega er haldin frönsk kvikmyndahátíð í Reykjavík og er hátíðin annar stærsti kvikmyndaviðburður Íslands á eftir RIFF. Árlega sækja um 10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina sem fagnaði sínu 14. sýningarári núna í janúar.

Markmið hátíðarinnar er að sýna fjölbreytni og frumleika í franskri og frönskumælandi kvikmyndagerð. Frakkland, sem er sögulegur fæðingarstaður hreyfimynda, er í dag þriðji stærsti kvikmyndaframleiðandi heims á eftir Bandaríkjunum og Indlandi. Franska sendiráðið á Íslandi kemur að þessari hátíð ásamt Græna ljósinu og Háskólabíó, Institut français og Alliance française í Reykjavík.

FFF_AKU_web