Uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi bar í gærkvöld upp til samþykktar framboðslista flokksins vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026 á félagsfundi sem fram fór á Húsavík.
Það er mikið gleðiefni að í efstu sætin raðist öflugt Sjálfstæðisfólk sem hefur góða reynslu af sveitarstjórnarmálum og er tilbúið til að berjast áfram ötullega fyrir eflingu samfélagsins í Norðurþingi. Það er sömuleiðis ánægjulegt að á framboðslistanum séu nýir metnaðarfullir einstaklingar sem vilja leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu sem framundan er hjá sveitarfélaginu og vinna að framþróun Norðurþings.
„ Ég er þakklát fyrir traust Sjálfstæðisfólks í Norðurþingi til að leiða lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi og ég hlakka til samstarfsins við þennan öfluga hóp sem skipar listann. Ég hlakka sömuleiðis til kjörtímabilsins sem framundan er því við erum vel í stakk búin til að takast á við þær krefjandi aðstæður sem nú eru uppi og á sama tíma erum við nær en áður ákvörðun næsta fyrirtækis um að staðsetja sig á Bakka, með öllum þeim tækifærum sem því munu fylgja. En þar til það gerist er forgangsatriði að sýna ábyrgð í rekstri, samhliða því að veita íbúum og fyrirtækjum sem hér eru áfram gæða þjónustu.”
–Helena Eydís Ingólfsdóttir, 1. sæti D-lista
„ Ég er Húsvíkingur, fæddur og uppalinn. Ég rek mitt fyrirtæki hér og börnin mín ganga í bæði grunnskóla og leikskóla samfélagsins. Ég veit hve gott er að alast hér upp og hve mikið býr í Norðurþingi. Til þess að virkja og nýta alla þá möguleika sem eru á svæðinu þarf að vera til staðar öflugt og stöðugt atvinnulíf. Tel ég því að brýnustu verkefni stjórnmálamanna Norðurþings á komandi árum verði að forgangsraða fjármunum af ábyrgð, leggja áherslur á verkefni sem koma með tekjur í sveitafélagið, skapa væn skilyrði til atvinnuuppbyggingar, styðja við nýsköpun og að sjálfsögðu einnig við rótgróin og mikilvæg fyrirtæki svæðisins. Ég hlakka til leggja mitt af mörkum á sterkum lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi.“
– Þorsteinn Snævar Benediktsson, 2. sæti D-lista
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi 2026
1. Helena Eydís Ingólfsdóttir – sveitarstjórnarfulltrúi og verkefnastjóri
2. Þorsteinn Snævar Benediktsson – atvinnurekandi og bruggmeistari
3. Kristján Friðrik Sigurðsson – fiskeldisfræðingur
4. Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir – þjónustustjóri
5. Guðni Már Kjartansson – atvinnurekandi
6. Birna Íris Barkardóttir – hótelstjóri
7. Þórður Sigmundur Sigmundsson – viðhaldsstjóri og smiður
8. Arna Ýr Arnarsdóttir – fjármála og áfangastjóri
9. Stefán Jón Sigurgeirsson – verkefnastjóri
10. Áslaug Guðfinna Friðfinnsdóttir – kennari
11. Baldur Baldvinsson – starfsmaður vöruhúss
12. Erna Sigríður Hannesdóttir – kennari
13. Elmar Örn Guðmundsson – stuðningsfulltrúi og þjálfari
14. Anna Björg Leifsdóttir – ráðgjafi í málefnum barna og fjölskyldna
15. Magnús Máni Sigurgeirsson – háskólanemi
16. Anna Rósa Magnúsdóttir – næringarrekstrarfræðingur
17. Oddur Vilhelm Jóhannsson – útgerðarmaður
18. Stella Borgþóra Þorláksdóttir – heiðurskona