Framkvæmdir eru á fullu á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði til að undirbúa svæðið fyrir veturinn. Fyrirtækið L7 sér um framkvæmdirnar og í byrjun vikunnar voru undirstöður fyrir nýja lyftu steyptar, möstur flutt upp í fjallið og byrjað var að setja upp.
Súlulyfta verður tilbúin fyrir veturinn. Þá standa fjölmargar aðrar framkvæmdir yfir til að gera svæðið og aðstöðuna sem besta fyrir gesti svæðisins.
Umsjónarmenn hlakka til að opna svæðið í vetur og taka á móti gestum.
Þetta kemur fram í tilkynning frá rekstraraðilum svæðisins í dag á samt myndum.