Náttúrusetrið á Húsabakka í Svarfaðardal hefur undanfarin ár unnið að verkefni sem nefnist Friðland fuglanna. Síðasta sumar var opnuð all sérstæð fuglasýning með þessu nafni að Húsabakka í Svarfaðardal. Á sýningunni gefst börnum og fullorðnum kostur á að kynnast á áþreifanlegan og eftirminnilegan hátt fuglum í náttúru og menningu Íslands. Sýningin hefur vakið sérstaka athygli fyrir óvenjulega nálgun á þessu viðfangsefni þar sem lóan baðast diskóljósum, ástarlíf óðinshanans er opinberað og veðurfræði himbrimans brotin til mergjar. Segja má að fuglarnir hafi loksins komið út úr skápnum á þessari sýningu sem opin er alla daga í sumar.
Sýningin er þó aðeins hluti af verkefninu „Friðland fuglanna“ í Svarfaðardal og eins konar forstofa að Friðlandi Svarfdæla, elstu votlendisfriðunar á Íslandi, og þeim síkvika ævintýraheimi sem þar er að finna einkum snemmsumars þegar fuglalífið er í sem mestum blóma.
Undanfarin ár hefur Náttúrusetrið á Húsabakka reist fuglaskoðunarhús við Hrísatjörn nálægt Dalvík og Tjarnartjörn neðan Húsabakka í Svarfaðardal. Í vor hefur verið unnið að frágangi fræðslustíga með á annað hundrað upplýsingaskiltum um blóm og fugla í Friðlandinu. Gestir og gangandi geta nú á eigin vegum gengið þessa stíga, annars vegar frá Olís á Dalvík umhverfis Hrísahöfða og hins vegar frá Húsabakka niður í svokallaðan Hánefsstaðahólma, fræðst um náttúruna og notið um leið söngs, fuglanna, angan blómanna og hrikalegrar fegurðar hins Svarfdælska fjallahrings. Fræðslustígarnir voru formlega opnaðir 1. júlí sl. í gönguviku í Dalvíkurbyggð.