Miðvikudaginn 12. október kl. 19:30 býður Grunnskóli Fjallabyggðar upp á fræðslu og spjall um kvíða og áföll í lífi barna og unglinga.
María Hensley skólasálfræðingur og Jón Baldvin Hannesson frá Rauðakrossi Íslands fjalla um málefnið og í framhaldinu verða umræður og spjall yfir kaffibolla. Fræðslan fer fram í Grunnskóla Fjallabyggðar við Tjarnarstíg í Ólafsfirði.
Foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir.
Forvarnarteymi Grunnskóla Fjallabyggðar skipuleggur viðburðinn.