Sigríður Guðmundsdóttir kylfingur úr Golfklúbbi Fjallabyggðar fór holu í höggi, föstudaginn 20. október síðastliðinn.
Afrekið átti sér stað á 6. holu Skeggjabrekkuvallar í Ólafsfirði.
6. hola er löng par 3 hola, 153 m af rauðum teigum og að auki er upphafshöggið blint.
GFB greindi frá þessu á samfélagsmiðlum ásamt mynd.