Gámaflutningabíll sleit í sundur kapal sem festur var í gangaloftið í Héðinsfjarðargöngum í gær og skapaðist af því nokkur hætta fyrir vegfarendur. Lögregla og Vegagerðin voru kölluð á vettvang. Við þetta óhapp varð rafmagnslaust á 500 metra kafla Siglufjarðarmegin í Héðinsfjarðargöngum og tafði þetta því umferð þar sem töluvert myrkur varð í göngunum. Tvisvar áður hefur orðið sambærilegt óhapp í göngunum en líklegt þykir að flutningabílar keyri of nálægt vegginum og slíti þannig kapalinn.