Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði hefst sunnudaginn 28. desember kl. 17:00. Opið verður alla daga í sölunni hjá þeim fram á gamlársdag við Tjarnargötu 18 á Siglufirði.
Flugeldasýning Stráka verður á Siglufirði 31. desember kl. 21:00. Áramótabrenna verður haldin kl. 20:30 sunnan við Rarik á Siglufirði.
Opnun:
- 28. desember 17-20
- 29. desember 15-21
- 30. desember 12-22
- 31. desember 10-15

