Íslenska ferðaskrifstofan Trans-Atlantic hyggst í samstarfi við eistneska flugfélagið Estonian Air hefja áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar sumarið 2016. Þessi nýja flugleið verður hluti af leiðakerfi Estonian Air. Flugið hefst í maí 2016 og flogið verður einu sinni í viku á laugardögum til 24. september. Flogið verður á Bombardier CRJ900 sem hefur 84 sæti. Ef nýting flugsins verður góð eru möguleikar á aukinni tíðni og lengra tímabili í framtíðinni. Gert er ráð fyrir að flugið kosti um 60-70 þús með farangri.
Stefnt er að því að hægt verði að bóka í þessi flug frá og með 1. nóvember næstkomandi. Upplýsingar um það verður að finna innan tíðar á heimasíðum Trans Atlantic og Estonian Air.