Fljótahátíð verður haldin í þriðja skipti í ár um verslunarmannahelgina, dagana 1.-3. ágúst. Tjaldað verður við Ketilás í Fljótum og þar verður dagskrá alla helgina, meðal annars músík bingó, Dj partý, sápuboltamót, dansleikur, bjórhlaup, brekkusöngur og brenna. Hátíðarpassi kostar 12900 kr. Einnig er miðasala á staka viðburði.
Dagskrá Fljótahátíðar:
Föstudagurinn 1. ágúst
19:00 Afhending hátíðarpassa
20:30 Músik bingó með Fanney Birtu
00:00 Dj partý fram eftir nóttu
Laugardagur 2. ágúst
13:00 Sápubolti fyrir þau yngri FRÍTT!
14:00 Sápuboltamót
16:00 Grillaðar pylsur við félagsheimilið
23:00-03:00 Dansleikur með Danssveit Dósa
Sunnudagur 3. ágúst
14:00 Bjórhlaup í boði Seguls 67
20:00 Brekkusöngur með Sæþóri
20:30 Kveikt í brennuni
23:00-03:00 Sprite Zero Klan og dj partý fram á nótt

